Verkstjóri í fiskiðjuver SVN í Neskaupstað

Síldarvinnslan hf. auglýsir eftir verkstjóra til starfa í fiskiðjuverinu í Neskaupstað. Unnið er á tólf tíma vöktum hluta af ári á makríl- , síldar- og loðnuvertíð.

Rífandi kolmunnaveiði á gráa svæðinu

Afar góð kolmunnaveiði hefur verið á gráa svæðinu suður af Færeyjum að undanförnu. Hákon EA landaði 1.600 tonnum í Neskaupstað í fyrradag og Vilhelm Þorsteinsson EA er á leiðinni þangað með um 3.200 tonn. Barði NK kom til Seyðisfjarðar í morgun með 2.100 tonn og hafði heimasíðan samband við Þorkel Pétursson skipstjóra og spurði frétta.

Heldur tryggð við Raufarhöfn

Í nýútkominni samfélagsskýrslu Síldarvinnslunnar eru birt stutt viðtöl við nokkra starfsmenn fyrirtækisins og dótturfélaga. Nokkur þessara viðtala munu birtast hér á heimasíðunni og hið fyrsta er við Eyrúnu Guðmundsdóttur starfsmann á rannsóknastofu fiskimjölsverksmiðjunnar á Seyðisfirði.

Kynning á ársuppgjöri 2023

Gunnþór B. Ingvason forstjóri mun gera grein fyrir niðurstöðum ársuppgjöri 2023

Fundurinn verður haldinn með rafrænum hætti 07.03.2024 klukkan 16:00

SÍLDARVINNSLAN HF.

Síldarvinnslan hf. er nú eitt af stærstu og öflugustu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og byggir starfsemi sína á yfir hálfrar aldar reynslu í fiskvinnslu og útgerð. Fyrirtækið er hið umsvifamesta á Íslandi á sviði veiða og vinnslu á uppsjávartegundum og stærsti framleiðandi á fiskimjöli og lýsi á landinu.

VEIÐAR

Síldarvinnslan er einn stærsti kvótahafi á Íslandi. Aflaheimildir samstæðunnar á kvótaárinu 2022/2023 eru 220 þúsund tonn eða 52 þúsund þorskígildistonn.

VINNSLA

Síldarvinnslan er stærsti framleiðandi landsins á uppsjávarafurðum. Síldarvinnslan rekur í dag tvær fiskimjölsverksmiðjur, í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Fyrirtækið rekur hátækni fiskiðjuver í Neskaupstað og þar eru einnig stærstu frystigeymslur á landinu. Fyrirtækið rekur bolfiskvinnslur í Grindavík og á Seyðisfirði.

STARFSFÓLKIÐ

Síldarvinnslan er hátækni sjávarútvegsfyrirtæki í fremstu röð. Fyrir slíkt félag er sífellt mikilvægara að ráða hæft fólk til starfa og tryggja strfsánægju þess. Félagið hefur því sett sér metnaðarfulla stefnu í starfsmannamálum sem miðar að því að skapa vinnuumhverfi sem einkennist af hvatningu, öryggi og góðum samskiptum