Graðýsa og stórþorskur
Ísfisktogarinn Gullver NS kom til löndunar á Seyðisfirði í gærmorgun. Aflinn var 107 tonn eða nánast fullfermi. Heimasíðan ræddi við Þórhall Jónsson skipstjóra og bað hann um að segja stuttlega frá veiðiferðinni.
Síldarvinnslan að taka fræðslumálin föstum tökum í samvinnu við Austurbrú
Síldarvinnslan hefur hafið vinnu við gerð fræðsluáætlunar fyrir allt starfsfólk fyrirtækisins í samvinnu við Austurbrú. Þessar vikurnar stendur yfir mat á fræðsluþörf sjómanna en í kjölfarið mun hefjast vinna við að meta fræðsluþörf annars starfsfólks.
Verkstjóri í fiskiðjuver SVN í Neskaupstað
Síldarvinnslan hf. auglýsir eftir verkstjóra til starfa í fiskiðjuverinu í Neskaupstað. Unnið er á tólf tíma vöktum hluta af ári á makríl- , síldar- og loðnuvertíð.
Kynning á ársuppgjöri 2023
Gunnþór B. Ingvason forstjóri mun gera grein fyrir niðurstöðum ársuppgjöri 2023
Fundurinn verður haldinn með rafrænum hætti 07.03.2024 klukkan 16:00
SÍLDARVINNSLAN HF.
Síldarvinnslan hf. er nú eitt af stærstu og öflugustu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og byggir starfsemi sína á yfir hálfrar aldar reynslu í fiskvinnslu og útgerð. Fyrirtækið er hið umsvifamesta á Íslandi á sviði veiða og vinnslu á uppsjávartegundum og stærsti framleiðandi á fiskimjöli og lýsi á landinu.
VEIÐAR
Síldarvinnslan er einn stærsti kvótahafi á Íslandi. Aflaheimildir samstæðunnar á kvótaárinu 2022/2023 eru 220 þúsund tonn eða 52 þúsund þorskígildistonn.
VINNSLA
Síldarvinnslan er stærsti framleiðandi landsins á uppsjávarafurðum. Síldarvinnslan rekur í dag tvær fiskimjölsverksmiðjur, í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Fyrirtækið rekur hátækni fiskiðjuver í Neskaupstað og þar eru einnig stærstu frystigeymslur á landinu. Fyrirtækið rekur bolfiskvinnslur í Grindavík og á Seyðisfirði.
STARFSFÓLKIÐ
Síldarvinnslan er hátækni sjávarútvegsfyrirtæki í fremstu röð. Fyrir slíkt félag er sífellt mikilvægara að ráða hæft fólk til starfa og tryggja strfsánægju þess. Félagið hefur því sett sér metnaðarfulla stefnu í starfsmannamálum sem miðar að því að skapa vinnuumhverfi sem einkennist af hvatningu, öryggi og góðum samskiptum