|
8. september 2010 |
 Súlan EA-300 Hið velþekkta aflaskip Súlan EA-300 hefur lokið sinni þjónustu við land og þjóð. Kl. 22:00 þann 7. september 2010, lét skipið úr höfn frá Neskaupstað áleiðis til Belgíu þar sem skipið verður skorið í bræðslupottana og stálið endurunnið til nytsamlegra nota á ný. |
|
...nánar
|
|
|
3. ágúst 2010 |
Neistaflugsgolfmót GN og Síldarvinnslunnar hf. fór fram á Grænanesvelli s.l. laugardag í ágætu veðri þótt ekki væri sól og dálítið kulaði fyrripartinn. Það voru 111 keppendur sem luku leik í mótinu og hafa ekki áður jafn margir keppendur verið í golfmóti á Austurlandi. Síldarvinnslan hf. styrkti mótið veglega eins og undanfarin ár og voru helstu úrslit þessi: |
|
...nánar
|
|
|
13. júlí 2010 |
 Síldarflök Mikið er umleikis í makríl og síld þessa dagana og kom Beitir NK í morgun með um 400 tonn af makríl og síld. Börkur NK, Beitir NK og Bjarni Ólafsson AK landa með reglulegu millibili til að skammta vinnslunni hæfilega svo hægt sé að gera sem mest úr þeim afla sem berst að landi. Megninu af aflanum er landað til manneldis. Síldin er flökuð en makríllinn er hausaður og slógdreginn, afskurður og það sem flokkast frá fer síðan í bræðslu. Það eru rúmlega 80 manns sem koma að vinnslunni í fiskiðjuverinu og bræðslunni. |
|
...nánar
|
|
|
3. júní 2010 |
 Beitir NK123 - Mynd: Þorgeir Baldursson Í tilefni af komu nýs Beitis NK til Neskaupstaðar verður bæjarbúum og nærsveitungum boðið að koma og skoða skipið og þiggja léttar veitingar. Móttökudagskrá hefst kl. 13:00, skipið verður opið til skoðunar til 15:00. |
|
...nánar
|
|
|
11. maí 2010 |
|
Síldarvinnslan hf. hefur fest kaup á Margréti EA-710 af Samherja hf. Margrét EA er eitt öflugasta uppsjávarskip íslenska flotans. Skipið var smíðað í Noregi 1998 og er 2.188 brúttótonn, 1.270 brúttórúmlestir og 71,1 metri að lengd og 13 metrar að breidd. Aðalvél skipsins er Wartsila 11.000 hestöfl. Tankarými er 2.100 m2 í tólf tönkum, tvö kælikerfi eru í skipinu samtals 1,5 millj. kcal.
Skipið mun hljóta nafnið Beitir NK-123 og skipstjóri verður Sturla Þórðarson, skipstjóri á móti Sturlu verðu Hálfdán Hálfdánarson. Sturla hefur verið skipstjóri á Berki NK. Skipstjóri á Berki NK verður Sigurbergur Hauksson og á móti Sigurbergi verður Hjörvar Hjálmarsson en þeir hafa báðir verið skipstjórar á skipum félagsins. |
|
...nánar
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 9 af 56 |