OOPS. Your Flash player is missing or outdated.Click here to update your player so you can see this content.
Landakort
Póstlisti
Sækja um starf
Aðalsíða arrow Starfsfólk arrow Starfsmannafréttir
Starfsmannafréttir
Karnivaldagur Nesskóla Prenta Tölvupóstur
1. júní 2010
...nánarÞað var skrautlegur hópur nemenda úr Nesskóla sem marseraði um götur bæjarins í dag en tilefnið var Húllumhæ dagur skólans.  Skólinn skiptist í 5 liti og voru vinabekkir samlitir.  Þegar skrúðgöngunni lauk var farið upp á fótboltavöll þar sem grillað er fyrir krakkana.
...nánar
 
Skíðaferð Skrifstofu Prenta Tölvupóstur
14. apríl 2010

...nánarSkrifstofan skellti sér á skíði s.l. mánudag í sól og blíðu.  Þetta var hin skemmtilegasta ferð og margir fóru á skíði í fyrsta sinn í mörg ár.  Eftir daginn voru svo veitt verðlaun fyrir hinar ýmsu uppákomur og kúnstir.  Frábær dagur í Skarðinu.

...nánar
 
Spurningakeppni fyrirtækja Prenta Tölvupóstur
22. mars 2010

...nánar
Víglundur Gunnarsson, Ari Egilsson, Vilhjálmur Lárusson
Undanfarnar 2 vikur hefur farið fram spurningakeppni fyrirtækjanna í bænum.  Keppnin er haldin af 9. bekk Nesskóla í fjáröflunarskyni og hefur verið hin skemmtilegasta og svolítið í anda sjónvarpsþáttarins Útsvars. 
Síldarvinnslan hf. sendi frá sér 3 lið í keppnina, frá skrifstofu, bræðslu og fiskiðjuveri.  Lið okkar veittu öll keppinautum sínum harða samkeppni en því miður komst ekkert þeirra áfram. 
Meðfylgjandi myndir tók Guðlaugur Birgisson.

...nánar
 
Upp er runninn öskudagur Prenta Tölvupóstur
17. febrúar 2010

...nánar
Vígalegir víkingar
Hjá okkur er búið að vera mikið að gera í morgun við að taka á móti krökkum í allsskonar búningum.  Krakkarnir hafa sungið fyrir okkur og fengið harðfisk að launum.
Kl. 15:00 byrjar svo grímuball í íþróttahúsinu þar sem tunnan verður slegin og farið verður í leiki.

...nánar
 
Skyndihjálparnámskeið Prenta Tölvupóstur
29. janúar 2010

...nánarUndanfarnar vikur hafa starfsmenn Síldarvinnslunnar hf. verið á skyndihjálparnámskeiðum frá Rauða Krossi Íslands.  Búið er að halda 3 námskeið, eitt í fiskiðjuveri og tvö í fiskimjölsverk-smiðjunni í Neskaupstað.  Fyrirhuguð eru námskeið fyrir pólska starfsmenn og einnig fyrir starfsmenn á Seyðisfirði og í Helguvík.  Þessi námskeið eru liður í að auka öryggi á vinnustöðum 

...nánar
 
Starfsmannahátíð 2009 Prenta Tölvupóstur
23. október 2009

Starfsmannahátíð Síldarvinnslunnar hf. verður haldin á morgun, laugardaginn 24.10.2009.  Húsið opnar kl. 19:00 með fordrykk og hefst borðhaldið kl. 20:00.  Veislustjóri verður Gísli Einarson sem er kunnastur fyrir þætti sína Út og suður í sjónvarpinu og ekki skemmir að hann á ættir sínar að rekja til Norðfjarðar.   Að loknu borðhaldi og skemmtiatriðum mun hljómsveitin Mono leika fyrir dansi.

Góða skemmtun

 
Óvissuferð starfsmanna í Neskaupstað og Seyðisfirði Prenta Tölvupóstur
20. júní 2008
...nánar
Lagt af stað í Silfurbergsnámuna
Starfsmenn landvinnslu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði gerðu sér glaðan dag í gær en farið var í Helgustaðanámuna í Reyðarfirði og starfshættir við vinnslu silfurbergs kannaðir.  Einnig var farið að Útstekk en þar var stærsti verslunarstaður Austurlands á dögum dönsku einokunarverslunarinnar.  Ferðin endaði með mikilli veislu í Randulffssjóhúsi á Eskifirði þar sem starfsmenn skemmtu sér fram eftir kvöldi. Allt skipulag var í höndum  Sævars Guðjónssonar hjá Ferðaþjónustu Mjóeyrar og kunnum við honum bestu þakkir.
...nánar
 
Karl Hjelm lætur af störfum hjá Síldarvinnslunni Prenta Tölvupóstur
17. júlí 2006
Síðasti dagurinn í vinnunni hjá Kaj
Karl Hjelm hóf störf hjá Síldarvinnslunni hf. haustið 1966. Starfaði hann í bræðslunni í nokkur ár, síðan í saltfiskverkuninni og löndunum á ísfiski ásamt uppskipunum með viðkomu í reykiðjunni (sem var á efstu hæðinni í gamla frystihúsinu). Þegar hætt var að salta bolfisk fór hann í að salta síld hjá Haraldi Jörgensen í Fiskiðjuverinu og sinnti auk þess fiskmati. Síldarvinnslan hf. þakkar Kaj fyrir vel unnin störf í gegnum árin og óskar honum alls hins besta í framtíðinni.