OOPS. Your Flash player is missing or outdated.Click here to update your player so you can see this content.
Landakort
Póstlisti
Sækja um starf
Aðalsíða arrow Starfsfólk arrow Starfsmannastefna
Starfsmannastefna Prenta Tölvupóstur

Starfsmannastefna Síldarvinnslunnar hf. á að tryggja starfsmönnum góð starfsskilyrði og möguleika til að vaxa og dafna í starfi, starfsmönnum sem hafa metnað og vilja til að fylgja fyrirtækinu inn í framtíðina.
Starfsfólk Síldarvinnslunnar hf. vinnur fjölbreytt störf við hráefnisöflun og matvælaframleiðslu. Það sækir hráefni í hafið, vinnur úr því matvæli til neyslu hérlendis og erlendis og framleiðir mjöl- og lýsi til fóðurgerðar og fiskeldis. Til að þetta geti farið fram á markvissan og hagkvæman hátt þarf Síldarvinnslan hf. ávallt að hafa á að skipa hæfu og áhugasömu starfsfólki.
Starfsmannastefnan lýsir viðhorfum Síldarvinnslunnar hf. um væntingar og kröfur sem stjórnendur og starfsmenn gera hverjir til annarra. Þar sem stefnan er í mótun eru starfsmenn hvattir til að koma með ábendingar um atriði sem betur mega fara.
Starfsmannastjóri hefur yfirumsjón með starfsmannamálum og er starfsmönnum bent á að snúa sér til hans með tillögur og fyrirspurnir.


Jafnréttisstefna
Stefna Síldarvinnslunnar er að gætt skuli fyllsta jafnréttis milli kynjanna og að hver starfsmaður verði metinn á eigin forsendum við ráðningar og tilfærslur í starfi. Þannig verði tryggt að mannauður fyrirtækisins nýtist sem best. Kynbundin mismunun er óheimil og leitast skal við að jafna hlutfall kvenna og karla í hinum ýmsu störfum innan fyrirtækisins. Greiða skal jöfn laun og sömu kjör fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf. Konur og karlar skulu eiga jafnan aðgang að starfsmenntun og þjálfun.
Kynferðisleg áreitni, einelti og kynþáttafordómar verða ekki liðin og er það stefna fyrirtækisins að útrýma slíkri mismunun komi hún í ljós.

Kynning og nýliðafræðsla
Síldarvinnslan tekur skipulega á móti nýju starfsfólki. Markmið með skipulegri kynningu er að starfsmenn nái sem fyrst tökum á verkefnum sínum, fái jákvæða mynd af fyrirtækinu, kynnist helstu samstarfsmönnum sínum og þekki rétt sinn og skyldur.
Nýráðið starfsfólk fær fræðslu um starfsemi fyrirtækisins og stjórnskipulag, starfsmannastefnu, vinnubrögð og starfsvenjur ásamt framtíðarsýn Síldarvinnslunnar
Síldarvinnslan stefnir að því að allir nýráðnir starfsmenn fái á fyrsta starfsdegi afhenta handbók sem inniheldur starfstengdar upplýsingar. Handbókin liggur frammi á öllum starfsstöðum.

Kjaramál
Síldarvinnslan fer í launa-, kjara- og réttindamálum að ákvæðum kjarasamninga. Stefnt er að því að taka meira tillit til ábyrgðar, frammistöðu og árangurs við ákvörðun kjara.
Síldarvinnslan stefnir að því að bjóða starfsmönnum sínum sambærileg kjör og best gerast hjá öðrum sambærilegum fyrirtækjum.

Upplýsingar og starfsmannafundir
Síldarvinnslan vill halda uppi virkum samskiptum við starfsmenn til að tryggja að nauðsynlegar upplýsingar um starfsemina séu aðgengilegar öllum. Í þessu skyni eru haldnir reglubundnir starfsmannafundir, en nýjustu upplýsingar um starfsemina er ávallt að finna á svn.is.

Starfsþróun
Síldarvinnslan leggur áherslu á fræðslu og símenntun starfsmanna sinna. Markmið með fræðslu er að starfsmaðurinn verði hæfari til að sinna starfi sínu, taki virkari þátt við þróun vinnuferla og leiti leiða til hagræðingar. Einnig að starfsmenn séu ávallt reiðubúnir til að takast á við ný verkefni þegar þau ber að höndum.
Það er jafnt á ábyrgð starfsmanna sem stjórnenda að viðhalda og auka þekkingu sem nauðsynleg er starfsins vegna. Stefnt er að því að yfirmenn ræði við alla starfsmenn sína um gagnkvæmar kröfur og væntingar. Starfsmenn og stjórnendur eru hvattir til að taka virkan þátt í reglubundinni áætlanagerð um starfsþróun og koma með ábendingar og tillögur.

Gæðastefna
Stefna Síldarvinnslunnar er að framleiða fiskafurðir til að mæta væntingum sem viðskiptavinurinn gerir, mæta kröfum sem gerðar eru af opinberum aðilum og uppfylla ávallt öll ákvæði sem getið er í sölusamningum.

Aðbúnaður og öryggismál
Síldarvinnslan stefnir að því að allur aðbúnaður í vinnuumhverfinu uppfylli nútímakröfur og sé í samræmi við lög og reglugerðir um öryggi og aðbúnað á vinnustað. Jafnframt ber starfsmönnum að fylgja þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra um öryggi og aðgát í starfi.

Umhverfisstefna
Síldarvinnslan hefur það að markmiði að starfa í sem bestri sátt við umhverfi sitt. Stuðla að sjálfbærri nýtingu fiskistofna og bættri umgengni um auðlindina. Stefna Síldarvinnslunnar er að hámarka nýtingu á hráefnum og orku. Markvisst er stefnt að því að auka notkun umhverfisvænnar orku, að stuðla að umhverfisvænum rekstri á öllum stigum framleiðslunnar og að framleiða heilnæmar gæðaafurðir. Unnið er að því að uppfylla grænt bókhald.
Síldarvinnslan hlaut umhverfisverðlaun LÍU árið 2002. Verðlaunin eru veitt fyrirtækjum sem skara fram úr í umhverfismálum, vörnum gegn mengun og umgengni um auðlindina. Síldarvinnslan mun sjá til þess að fylgja umhverfisstefnunni eftir á margvíslegan hátt og sjá til þess að allir starfsmenn fyrirtækisins séu meðvitaðir um hana og fái tækifæri til að taka þátt í mótun og þróun hennar.

Vinnutími
Síldarvinnslan leggur áherslu á að starfsmenn séu stundvísir og við störf á þeim tíma sem samið hefur verið um og fram kemur í ráðningarsamningi. Yfirmanni eða verkstjóra ber að fylgjast með mætingum og fjarveru í vinnutíma, kanna ástæður fyrir slíku og grípa til aðgerða.
Starfsmönnum Síldarvinnslunnar skal gert kleift að minnka við sig vinnu tímabundið vegna fjölskylduábyrgðar, t.d. vegna umönnunar barna, þegar um langvinna og erfiða sjúkdóma innan fjölskyldunnar er að ræða eða af öðrum persónulegum ástæðum. Skal starfsmönnum gefinn kostur á hlutastörfum, sveigjanlegum vinnutíma og sveigjanlegu orlofi eftir því sem kjarasamningar og aðstæður á vinnustað framast leyfa.

Samskipti á vinnustað
Að skapa góðan starfsanda á vinnustað er sameiginleg ábyrgð allra starfsmanna. Starfsmenn Síldarvinnslunnar skulu sýna samstarfsmönnum sínum, jafnt sem öðrum, tilhlýðilega virðingu, umburðarlyndi og jákvætt viðmót.
Síldarvinnslan leitast við að skapa traust milli starfsmanna í öllum samskiptum með því að leggja áherslu á að jafnréttisstefnunni sé framfylgt og að starfsmenn hafi í heiðri almennar umgengnisreglur.

Vímuefni
Hjá Síldarvinnslunni er óheimilt að neyta áfengis eða vímuefna eða vera undir áhrifum þeirra í starfi. Starfsmaður sem á við áfengis- eða vímuefnavanda að stríða getur fengið sérstakt veikindaleyfi vegna fyrstu dvalar á meðferðarstofnun. Leysist vandinn ekki og vinna viðkomandi fyrir fyrirtækið verður áfram óásættanleg, veldur það starfsmissi.

Starfslok
Stefna Síldarvinnslunnar er að starfsmenn láti af störfum með jákvæðu hugarfari. Leitast verður við að hafa starfslokasamtal við þá sem hætta hjá fyrirtækinu. Fyrir uppsögn starfsmanns þurfa að vera málefnalegar ástæður og sé um meintar ávirðingar í starfi að ræða, ber yfirmanni að veita áminningu og gefa starfsmanni tækifæri til að tjá sig um málið, nema ávirðingar séu svo alvarlegar að það réttlæti fyrirvaralausa uppsögn.
Starfslokastefna Síldarvinnslunnar er að starfsmenn láti af störfum eigi síðar en í lok þess mánaðar sem þeir verða 67 ára.

Starfsmannastjóri Síldarvinnslunnar hf. veitir allar nánari upplýsingar um starfsmannastefnu fyrirtækisins í síma 470 7050 eða netfang Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það