OOPS. Your Flash player is missing or outdated.Click here to update your player so you can see this content.
Landakort
Póstlisti
Sækja um starf
Aðalsíða arrow Fréttir arrow Skipafréttir arrow Kolmunnafréttir
Kolmunnafréttir Prenta Tölvupóstur
15. apríl 2010

Börkur NK og Bjarni Ólafsson AK lönduðu báðir fullfermi af kolmunna á Norðfirði á þriðjudaginn sem skipin fengu á miðunum suður af Færeyjum.  Bæði skipin héldu aftur til veiða að lokinni löndun.

Barði NK landaði frystum afurðum á mánudag að verðmæti um 65 mkr. eftir um 15 daga að veiðum.  Stærstur hluti aflans var karfi.  Barði NK hélt aftur til veiða á þriðjudag.
Bjartur NK landaði á Norðfirði á þriðjudag um 90 tonnum og var uppistaða aflans þorskur og ufsi.  Bjartur NK hélt aftur til veiða að lokinni löndun á þriðjudaginn.