OOPS. Your Flash player is missing or outdated.Click here to update your player so you can see this content.
Landakort
Póstlisti
Sækja um starf
Aðalsíða arrow Fyrirtækið arrow Starfsemin
Starfsemin Prenta Tölvupóstur

Síldarvinnslan hf. er í dag eitt af stærstu og öflugustu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og byggir starfsemin á yfir 40 ára reynslu í fiskvinnslu og útgerð. Fyrirtækið er það stærsta á Íslandi í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski og stærsti framleiðandi á fiskimjöli og lýsi á Íslandi.

Starfsemi Síldarvinnslunnar og hlutdeildarfélaga er á 13 stöðum á landinu, auk Bandaríkjanna og Grænlands. Veiðiheimildir fyrirtækisins, ásamt hlutdeildarfélögum, nema alls um 30 þúsund þorskígildis tonnum. Hjá Síldarvinnslunni og hlutdeildarfélögum starfa um 370 manns og ársvelta samstæðunnar árið 2003 var um 9 milljarðar króna.

Síldarvinnslan starfrækir fullkomið fiskiðjuver, þar sem fram fer frysting á bolfiski og uppsjávarfiski ásamt síldarsöltun. Fyrirtækið starfrækir þrjá vel útbúnar fiskmjöls- og lýsisverksmiðjur og gerir út tvö skip til veiða á uppsjávarfiski, eitt frystiskip og eitt ísfiskiskip. Hlutdeildarfélög Síldarvinnslunanr gera út sex uppsjávar- og frystiskip.

Síldarvinnslan veitir sérhæfða hafnarþjónustu í Neskaupstað, sér um löndun og starfrækir rúmgóða frysti- og kæligeymslu og afkastamikla ísverksmiðju.