|
Tölvunámskeið
Vinur minn tölvan
Staðir: Neskaupstaður - Verkmenntaskóli
Seyðisfjörður - Seyðisfjarðarskóli
Leiðbeinendur: Marías B. Kristjánsson og Bára Mjöll Jónsdóttir
Verð: 3000
Lengd námskeiðs: 12 kennslustundir – 3 skipti
Tími: Neskaupstaður 6., 8. og 13 sept. 2005 kl. 19:30 – 22:10
Seyðisfjörður 12., 13. og 14. sept. 2005 kl. 19:30 – 22:10
Á námskeiðinu verða ýmis grunnatriði við tölvuvinnslu kynnt. Helstu stærðir og jaðartæki tölvunnar verða útskýrð og tekin dæmi um hvað skiptir máli við kaup á tölvu. Þá verður Windows viðmótið kynnt og þátttakendur útbúa notendaaðgang og setja upp eigið viðmót. Skipulagning tölvunnar verður útskýrð með áherslu á möppukerfið og sérsniðnar möppur í Windows. Tekin æfing í Internetinu - upplýsingaleit, innkaup og fleira.
Excel I
Staðir: Neskaupstaður – Verkmenntaskóli
Seyðisfjörður - Seyðisfjarðarskóli
Leiðbeinanandi: NN
Verð: auglýst síðar.
Lengd námskeiðs.:12 kennslustundir – 3 skipti
Tími: Neskaupstaður apríl 2006
Seyðisfjörður apríl 2006
Skoðuð verða grunnatriði, formúlur og gagnasöfn töflureiknis. Nemendur læra að útbúa formúlur og nota tímasetningar í útreikningi. Kennd verður uppsetning, leit og niðurröðun gagnasafna og fjölnota skjala og hvernig nýta má gagnasöfn til afstemmingar á bankareikningum og til útsendingar á bréfum og prentun límmiða.
Vafrað á vefnum – vefskoðun og gagnagrunnar
Staður: Neskaupstaður - Verkmenntaskóli Austurlands
Leiðbeinandi: Marías B. Kristjánsson
Verð: 1000
Lengd námskeiðs: 4 kennslustundir – 1 skipti
Tími: 10. maí 2006 - kl. 18-21
Lögð áhersla á kennslu í hagnýtri Internet notkun. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa nokkra reynslu af tölvunotkun.
Stafræn ljósmyndun I
Staður: Neskaupstaður - Verkmenntaskóli
Leiðbeinandi: Ellert Grétarsson
Verð: 1500
Lengd námskeiðs.: 6 kennslustundir – 1 skipti
Tími: 17. sept. 2005, kl. 10 - 14
Fjallað er almennt um stafrænar myndavélar, mismunandi gerðir, stillingar og almennar forstillingar sem henta við mismunandi aðstæður. Markmiðið að nemendur kynnist stafrænu myndavélinni sinni betur.
Fjallar er um hagnýt atriði ljósmyndunar, s.s. mismunandi veðurskilyrði og aðstæður, sjónarhorn og myndbyggingu, lýsingu og margt fleira.
Stafræn myndvinnsla I
Staður: Neskaupstaður, Verkmenntaskóli
Leiðbeinandi: Ellert Grétarsson
Verð: 1500
Lengd námskeiðs: 6 kennslustundir – 1 skipti
Tími: apríl 2006
Námskeið fyrir alla sem vilja komast í kynni við töfraheim myndvinnslu með Photoshop. Gott framhald fyrir þá sem hafa lokið námskeiðinu Stafræn ljósmyndun.
Kennd eru grunnatriðin í Photoshop 5.5 t.d. hvernig lagfæra má myndir s.s. liti og lýsingu, skerpu og kontrast, skipta um einfalda bakgrunna og fl. Fjallað verður almennt um úrvinnslu mynda t.d. útprentun á bleksprautuprentara.
Samskipti og skipulag – Outlook
Staður: Neskaupstaður - Verkmenntaskóli
Leiðbeinandi: NN
Verð: 2000
Lengd námskeiðs: 8 kennslustundir – 2 skipti
Tími: mars 2007
Nemendur læri að skrifa, senda, taka við, svara tilbaka og prenta út póst. Að flokka póst eftir innihaldi, sendanda og að búa til tengiliði, póstgrúppur, dagatal, sjálfvirkar undirskriftir, notkun viðhengja og að afgreiða ruslpóst á réttan hátt.
Tungumál
Íslenska fyrir útlendinga I. stig
Staður: Neskaupstaður – Verkmenntaskóli Austurlands
Leiðbeinandi: Kolfinna Þorfinnsdóttir
Verð: 12.400
Lengd námskeiðs: 50 kennslustundir
Tími: hefst í sept. 2005
Námskeið fyrir þá sem enga eða mjög litla undirstöðu hafa í íslensku. Aðaláhersla er lögð á talað mál og að þjálfa nemendur í daglegum samskiptum á íslensku.
Íslenska fyrir útlendinga II. stig
Staður: Neskaupstaður – Verkmenntaskóli Austurlands
Leiðbeinandi: NN
Verð: 12.400
Lengd námskeiðs.: 50 kennslustundir
Tími: námskeiðið hefst í sept. 2006
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa lokið 1. stigi eða hafa dvalið einhvern tíma á landinu. Aðaláhersla er á talað mál, s.s. vegna samskipta á vinnumarkaði en einnig á lesskilning. Fjallað um nauðsynleg málfræðiatriði til að tala rétt mál
Enska I
Staður: Neskaupstaður – í húsi Björgunarsveitarinnar Gerpis, Nesgötu 4
Leiðbeinandi: NN
Verð: 3000
Lengd námskeiðs.: 20 kennslustundir
Tími: hefst í apríl 2006
Á námskeiðinu læra nemendur orðaforða sem nýtist þeim við að bjarga sér á erlendri grund. Að auki styrkja þeir orðaforða sinn yfir ýmsa hluti tengda daglegu lífi og farið verður í nokkur auðveld málfræðiatriði.
Enska II
Staður: Neskaupstaður – í húsi Björgunarsveitarinnar Gerpis, Nesgötu 4
Leiðbeinandi: NN
Verð: 3000
Lengd námskeiðs.: 20 kennslustundir.
Tími: hefst í apríl 2007
Námskeiðið byggir á námskeiðinu Enska I en þeir sem kunna dálítið í ensku geta vel komið beint inn á þetta námskeið. Áfram er haldið þjálfun í talmáli og einfaldri málfræði en við bætist ritun og lestur á léttum textum.
Almenn námskeið – afþreying – handverk
Villibráð er veislumatur
Staður: Neskaupstaður – Heimasvist Verkmenntaskólans
Leiðbeinandi: Þráinn Lárusson
Verð: 2000
Lengd námskeiðs.: 6 kennslustundir
Tími: 10 des. 2005 kl. 14:00 - 18:00
Á námskeiðinu læra þátttakendur hinar ýmsu eldunaraðferðir á kjöti s.s. að elda gómsætan mat úr villibráð t.d. hreindýri, gæs og önd. Unnið verður með gæðahráefni úr náttúru Íslands og mikil áhersla lögð á að gjörnýta hráefnið. Námskeiðsgögn etin í lok námskeiðs.
Konfektgerð
Staður: Neskaupstaður – í húsi Björgunarsveitarinnar Gerpis, Nesgötu 4
Leiðbeinandi: Gróa Bjarnadóttir
Verð: 1500
Lengd námskeiðs: 6 kennslustundir
Tími: 1. des. kl. 19
Á námskeiðinu er ljúffengt konfekt steypt í mótum og fyllt. Sýndar mismunandi aðferðir við að skreyta.
Vínsmökkun
Staður: Neskaupstaður, Egilsbúð
Leiðbeinandi:
Verð:1500
Lengd námskeiðs: 4 kennslustundir
Tími: óákveðinn
Á námskeiðinu er kynnt hvernig matur og vín spilar saman – hvernig bragðlaukarnir geta breytt víni bæði til hins betra eða verra.
Útskurður
Staður: Neskaupstaður – í húsi Björgunarsveitarinnar Gerpis, Nesgötu 4
Leiðbeinandi: NN
12 kennslustundir
Verð: 2000
Á námskeiðinu er skorið út og tálgað tré.
Silfursmíði
Staður: Neskaupstaður – í húsi Björgunarsveitarinnar Gerpis, Nesgötu 4
Leiðbeinandi: NN
12 kennslustundir – 2 skipti
Verð: 2000
Þátttakendur kynnast uppsetningu íslenska víravirkisins, gerð þess og sögu. Þeir hanna og smíða víravirkisgripi.
Fluguhnýting
Staður: Neskaupstaður – í húsi Björgunarsveitarinnar Gerpis, Nesgötu 4
Leiðbeinandi: Björgvin "Veiðifluga" Pálsson
6 kennslustundir
Dags.: 6. maí 2006, kl. 10-16
Verð: 1000
Námskeið í fluguhnýtingum fyrir byrjendur. Farið verður í grunnatriði og byrjað á einföldum hnýtingum.
Starfstengd námskeið
Starfsfræðslunámskeið fiskvinnslunnar – grunnnámskeið/endurmenntun
Staður: Neskaupstaður – hús Björgunarsveitarinnar Gerpis, Nesgötu 4
Leiðbeinendur: Ýmsir
40 kennslustundir – ca. 12 námþættir
Tími: vor og/eða haust 2006
Skyndihjálp III
Staðir: Helguvík, Neskaupstaður, Seyðisfjörður og Siglufjörður
Leiðbeinendur: Ýmsir
Verð: 0
Lengd námskeiðs: 12 kennslustundir
Tími: Helguvík okt. 2006
Neskaupstað sept. 2006, í húsi Björgunarsveitarinnar Gerpis Nesgötu 4
Seyðisfirði 14. okt. 2005
Siglufirði nóv. 2005
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra skyndihjálp og endurlífgun og öðlast öryggi, færni og þekkingu í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum.
Suðunámskeið
Staður: Neskaupstaður - Verkmenntaskóli
Leiðbeinandi: NN
Verð: 0
Lengd námskeiðs: 12 kennslustundir
Tími: maí 2006
Líkamsbeiting
Stefnt er að námskeiði og skipulegu átaki í þessum málum í maí 2006
|