OOPS. Your Flash player is missing or outdated.Click here to update your player so you can see this content.
Landakort
Póstlisti
Sækja um starf
Aðalsíða
Síldarvinnslan hf. greiðir 100 þúsund króna launauppbót
18. desember 2009

Síldarvinnslan hefur ákveðið að greiða út 100 þúsund króna launauppbót til starfsmanna sem starfa við vinnslu og skrifstofu í landi.  Greiðslan miðast við fullt starf og tekur mið af starfshlutfalli.  Greiðslan verður greidd fyrir jól.

Þrátt fyrir samdrátt í loðnu og síld hefur rekstur félagsins gengið vel á árinu.  Munar þar mikið um stóraukna hlutdeild norsk-íslensku síldarinnar til manneldisvinnslu auk veiða og vinnslu makríls.  Ennfremur hefur rekstur félagsins notið góðs af veikingu krónunnar þó svo að skuldir hafi aukist í sama hlutfalli.

Starfsfólk félagsins bæði til sjós og lands hefur lagt sitt af mörkum við að hámarka verðmæti þess afla sem borist hefur að landi.  Hjá félaginu starfa 120 mans í landi og á skipum félagsins eru 70 manns.

...nánar
 
Enn eitt metárið hjá Berki NK-122
14. desember 2009

...nánarBörkur NK kom inn til löndunar í gærmorgun með 1.300 tonn af síld.  Síldarvertíðin hefur gengið vel hjá þeim Barkarmönnum og er aflinn kominn yfir 9 þúsund tonn á vertíðinni og hefur nánast allur afli skipsins farið í manneldisvinnslu.  Veiðar hafa gengið vel þótt vissulega sé langt að sækja aflann eða 36 tíma stím.  Til gamans má geta þess að skipið hefur farið í 9 veiðiferðir á vertíðinni og hefur tíminn skipt skipst þannig að u.þ.b. 650 tímar hafa farið í stím, 330 tímar í löndun og aðeins hefur verið stoppað í 75 tíma á miðunum.  Auk þess sem skipið hefur lagt af mörkunum 8 sólarhringa í síldarrannsóknir.

...nánar
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 19 - 24 af 59
 
15. apríl 2010
Kolmunnafréttir
8. apríl 2010
Börkur NK til kolmunnaveiða
24. mars 2010
Tregt í kolmunannum
11. febrúar 2010
Börkur NK landar í dag
9. febrúar 2010
Loðnan rennur austur
4. febrúar 2010
Börkur NK landar loðnu í dag

Neskaupstaður

Siglufjörður
Helguvík 

Barði NK120
Bjartur NK121
Börkur NK122



SR Mjöl