Börkur NK kemur með kolmunnafarm til hafnar á föstudaginn. Ljósm. Sigurjón Mikael Jónuson

Börkur NK kom með 2.200 tonn af kolmunna úr Rósagarðinum til Neskaupstaðar á föstudagsmorgun og Beitir NK kom þangað með tæplega 1.800 tonn í gærmorgun. Herbert Jónsson, skipstjóri á Berki, var ágætlega sáttur við aflabrögðin. “Við fengum aflann í sex holum og það var dregið frá átta og upp í fimmtán tíma í holi. Aflinn var frá 200 tonnum og upp í 460 tonn. Það var svolítið áberandi að lóðin voru að koma og fara og síðan var talsverður straumur á svæðinu, en annars gekk allt vel. Menn eru nokkuð ánægðir með þennan árangur og þarna er líka prýðisfiskur á ferðinni. Það var landað úr skipinu í tveimur skömmtum því gott þykir að geyma aflann vel kældan um borð,” sagði Herbert.

Ólafur Gunnar Guðnason, skipstjóri á Beiti, sagði einnig að menn væru ágætlega sáttir við veiðina í Rósagarðinum. “Við fengum þessi tæplega 1.800 tonn að mestu í fjórum holum. Aflinn var frá 200 tonnum og upp í 530 tonn í holi, en dregið var í fjórtán til sextán tíma. Nú er skipum að fjölga á miðunum. Aðalsteinn Jónsson SU og Jón Kjartansson SU hafa hafið veiðar og Bjarni Ólafsson AK heldur til veiða fljótlega,” sagði Ólafur Gunnar.