Landað úr Blængi NK í Neskaupstað. Ljósm. Hákon Ernuson

Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í gær að aflokinni 26 daga veiðiferð. Afli skipsins var 620 tonn upp úr sjó og eru verðmæti aflans 507 milljónir króna. Um er að ræða blandaðan afla, mest er af þorski og ýsu en einnig töluvert af gullkarfa, ufsa og fleiri tegundum. Heimasíðan ræddi við Bjarna Ólaf Hjálmarsson skipstjóra og spurði hann um veiðiferðina. Bjarni var ánægður með veiðina en sagði að slæmt veður hefði þó haft neikvæð áhrif. ”Það gekk ágætlega að fiska verður að segjast en veðrið var býsna rysjótt. Við þurftum að færa okkur til vegna veðursins og fórum reyndar einu sinni í var í tæpan sólarhring. Staðreyndin er sú að þetta voru alvöru haustbrælur sem voru á ferðinni og þær trufluðu veiðar verulega. Fiskiríið var jafnt og gott en við vorum mest að veiðum austur af landinu. Í um það bil vikutíma var veitt fyrir vestan en síðan var haldið austur á ný. Segja má að þessi túr hafi gengið vel þrátt fyrir tíðarfarið, allavega var hann alveg stórslysalaus,” sagði Bjarni Ólafur.

Blængur mun halda á ný til veiða í kvöld.