Vestmannaey VE landaði fullfermi í Þorlákshöfn á miðvikudag.
Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Veiðar hjá Vestmannaeyjaskipunum Vestmannaey VE og Bergey VE ganga sérlega vel um þessar mundir. Vestmannaey landaði fullfermi í Þorlákshöfn á miðvikudag og Bergey landaði fullfermi í Grindavík í gær. Það tekur örstuttan tíma að fylla skipin og fiskurinn sem fæst er bæði stór og fallegur. Heimasíðan sló á þráðinn til skipstjóranna og heyrði í þeim hljóðið. Egill Guðni Guðnason á Vestmannaey var kampakátur. ”Þetta gekk afar vel hjá okkur núna. Túrinn í heild sinni tók 37 tíma og þar af fór drjúgur tími í að sigla á milli veiðisvæða. Aflinn er blandaður, mest karfi, ýsa og þorskur. Karfinn fékkst í Grindavíkurdýpi, ýsan á Tánni og þorskurinn á Sjötíu föðmunum. Alls staðar gekk vel að veiða og veður var gott. Þetta var bara veisla,” sagði Egill Guðni.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, var einnig alsæll. ”Túrinn tók rétt rúman sólarhring en við vorum að veiðum vestan við Surt. Mest af aflanum er þorskur en síðan er þetta blanda af ufsa, ýsu og löngu. Það var virkilegur vertíðarbragur á þessu en þarna var aðgæsluveiði, það þurfti að gæta sín á því að fá ekki of stór hol. Fiskurinn sem fæst er stór og fallegur og ætti að henta afar vel í vinnsluna. Þetta er bara lovely, hreint út sagt,” sagði Jón.