
Ísfisktogarinn Gullver NS landaði 117 tonnum á Seyðisfirði í gær. Heimasíðan ræddi við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra og spurði hann hvernig túrinn hefði gengið. ”Hann gekk vel. Þetta var þægilegur túr í alla staði og við vorum fjóra sólarhringa að veiðum. Við byrjuðum í ýsu á Gerpisflaki og þar var svona nudd. Þaðan var siglt í átta tíma á Digranesflak og þar fengum við þorsk. Fiskurinn sem fékkst var góður og veðrið var fínt allan tímann þannig að það er ekki yfir neinu að kvarta. Við þurfum helst að blanda aflann vel. Það dugar ekki að fylla skipið alltaf af þorski því þá verður kvótastaðan fljótt býsna þröng. Auðveldast væri að moka bara upp þorskinum og það væri fyrirhafnarminnst.,” sagði Hjálmar Ólafur.
Gullver hélt á ný til veiða fljótlega eftir að löndun lauk.
Jóhanna Gísladóttir GK landar fullfermi á Djúpavogi í dag. Einar Ólafur Ágústsson skipstjóri segir að um hafi verið að ræða þriggja daga túr sem gekk vel. ”Aflinn fékkst á Glettingi og hann er mest þorskur. Það er dálítil ýsa með þorskinum og það var mikið haft fyrir henni. Það er bara mjög erfitt að ná í ýsuna. Við gerum ráð fyrir að halda til veiða á ný síðar í dag,” sagði Einar Ólafur.
Vestmannaeyjatogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE munu landa í Neskaupstað í dag en afli hvors þeirra er á milli 30 og 40 tonn. Skipin voru fyrst og fremst að reyna við ýsu á Austfjarðamiðum og gekk það heldur erfiðlega eins og hjá öðrum. Sumir telja að ýsuveiðin muni aukast með kaldari tíð en eins og er leita mörg skip að blessaðri ýsunni með takmörkuðum árangri. Gert er ráð fyrir að bæði skip haldi til veiða á ný síðar í dag eða í kvöld.