Börkur NK siglir inn Norðfjörð í snjómuggunni í gær með 1.480 tonn af síld. Ljósm. Smári Geirsson

Beitir NK kom til Nesksaupstaðar á laugardaginn með 1.540 tonn af íslenskri sumargotssíld sem fékkst vestur af landinu. Börkur NK kom síðan að vestan í gær með 1.480 tonn. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og bað þá um að greina frá því hvernig veiðarnar gengju. Ólafur Gunnar Guðnason á Beiti bar sig nokkuð vel. ”Við byrjuðum í Kolluálnum og tókum þar tvö 100 tonna hol. Síðan færðum við okkur í Jökuldýpið og þar voru tekin fjögur hol sem gáfu frá 100 og upp í 400 tonn. Það var ágæt veiði í Jökuldýpinu en síldin sem fékkst í Kolluálnum var heldur stærri. Það var blíða allan túrinn,” sagði Ólafur Gunnar.

Hjörvar Hjálmarsson á Berki var einnig sáttur með túrinn. ”Við fengum aflann í átta holum. Afli í hverju holi var mjög misjafn eða frá engu og upp í 400 tonn. Við hófum veiðarnar í Faxadýpinu en síðan var haldið í Kolluál og þar fékkst helmingur aflans. Það var góð veiði undir lokin í túrnum og síldin sem fékkst var ágæt. Það tekur um tvo sólarhringa að vinna aflann en hann er unninn jafnóðum og landað er,” sagði Hjörvar.

Spærlingur fæst nú með síldinni vestur af landinu. Spærlingur er smáfiskur, oft 16 – 19 cm að lengd og er þyngdin nokkrir tugir gramma. Ljósm. Geir Sigurpáll Hlöðversson

Báðir skipstjóranir gátu þess að nú fengist dálítið af spærlingi með síldinni og þá einkum í Jökuldýpinu og Faxadýpi en ekki í Kolluál.

Barði NK er á síldarmiðunum fyrir vestan land og er gert ráð fyrir að hann komi til löndunar á mánudag en framundan er helgarfrí hjá starfsfólki fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar.