Kolmunnaskip í Norðfjarðarhöfn í gær. Börkur NK til vinstri að landa og Barði NK til hægri að löndun lokinni. Ljósm. Hákon Ernuson

Veiði á kolmunna í Rósagarðinum gengur áfram vel. Barði NK kom til Neskaupstaðar á sunnudagsmorgun með 1.600 tonn og Börkur NK kom í gærmorgun með rúmlega 3.100 tonn. Theodór Haraldsson skipstjóri á Barða var sáttur við túrinn. “Við fengum þessi 1.600 tonn í fimm holum. Að löndun lokinni var skipt um veiðarfæri og haldið til síldveiða. Væntanlega verður síldin á dagskrá hjá okkur á næstunni,” sagði Theodór.

Leifur Þormóðsson var að fara með Börk í fyrsta túr sem skipstjóri og sagði hann að veiðin hefði í reynd verið ljómandi góð. “Það tók okkur eina fimm daga að fá í hann. Aflinn fékkst í sjö holum og var dregið hverju sinni frá átta og upp í fjórtán tíma. Það fengust á bilinu 250 – 700 tonn í holi. Veðrið var ágætt megnið af tímanum en það var farið að bræla undir lokin. Við gerum ráð fyrir að halda áfram í kolmunnanum en nú er einnig verið að veiða síld og makríl þannig að það eru ýmsir kostir í stöðunni,” sagði Leifur.

Hafþór Eiríksson verksmiðjustjóri segist vera mjög ánægður með kolmunnann sem hráefni. ”Hann er feitur á þessum tíma og það er góð lýsisframleiðsla. Það gengur vel að vinna kolmunnann og hann hentar vel til vinnslu að öllu leyti. Þessi veiðitörn hófst seint í ágúst og fyrsta kolmunnalöndunin var 26. ágúst. Nú hafa borist til okkar rúmlega 14 þúsund tonn úr Rósagarðinum og það getur enginn kvartað,” sagði Hafþór.