Páll Jónsson GK var með góðan keilutúr. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, halda áfram að veiða keilu af krafti. Páll Jónsson landaði í heimahöfn í Grindavík í gær og Sighvatur er að landa þar í dag. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og spurði frétta. Benedikt Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, var ánægður með túrinn. “Þetta var sallafínn túr en hann var allur tekinn í himnablíðu úti á Heimsmeistarahrygg. Sex lagnir voru teknar í túrnum og var aflinn tæplega 100 tonn. Meirihluti aflans var keila, en einnig var nokkuð af löngu, karfa, keilubróður og fleiri tegundum. Það var nánast ekkert af þorski í aflanum. Keiluveiðin að undanförnu hefur gengið býsna vel og menn eru vel sáttir og kátir,” sagði Benedikt.

Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson, skipstjóri á Sighvati, var einnig sáttur við veiðina. ”Við komum í land í gærkvöldi og það er verið að landa í dag. Aflinn er um 60 tonn og um 90% hans er keila. Við tókum fjórar lagnir í túrnum. Byrjað var suður af Selvogsbanka, síðan var haldið suður af Surtsey, þá á Sneiðina og loks endað í Háfadýpinu. Veður var hið besta þar til í lokin en þá var vindurinn 15 – 18 metrar,” sagði Aðalsteinn Rúnar.

Nú munu bæði Páll Jónsson og Sighvatur taka fimm vikna sumarstopp og að sögn skipstjóranna eru áhafnirnar afar hressar með að fá gott frí.