
Kolmunnaveiðin í Rósagarðinum hefur verið góð síðustu dagana. Barði NK landaði 2.200 tonnum í Neskaupstað á þriðjudaginn og fór allur aflinn í fiskimjöls- og lýsisframleiðslu. Að sögn Theodórs Haraldssonar skipstjóra fékkst aflinn í átta holum og voru á milli 200 og 300 tonn í hverju holi en togað var í frá tíu og upp í sautján tíma. Sagði Theodór að gott veður hefði verið á miðunum og þar hefðu fjögur íslensk skip verið að veiðum og eitt færeyskt að auki.
Beitir NK kom til löndunar í Neskaupstað í morgun með 3.100 tonn. Ólafur Gunnar Guðnason skipstjóri sagði að veiðin hefði gengið vel, ekki síst undir lok veiðiferðarinnar. ”Þrjú síðustu holin voru afskaplega góð. Þau gáfu 550, 520 og aftur 550 tonn en aflinn fékkst í sjö holum í túrnum. Það var dálítið erfitt að ná kolmunnanum undir lokin því hann var mjög botnlægur,” sagði Ólafur.
Börkur NK hélt til kolmunnaveiða í gær og var að hífa frysta holið í morgun en útlitið var gott.
Barði hélt til kolmunnaveiða strax að löndun lokinni en Beitir mun halda til síldveiða þegar löndun úr honum lýkur. Gert er ráð fyrir að Beitir verði kominn með síld til vinnslu á mánudag.