
Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, lönduðu bæði í heimahöfn í Grindavík nú í vikunni. Páll Jónsson landaði 126 tonnum á mánudag og Sighvatur um 80 tonnum á miðvikudag. Heimasíðan heyrði hljóðið í skipstjórunum og spurði frétta af veiðinni.
Jónas Ingi Sigurðsson á Páli Jónssyni sagði að túrinn hefði verið fínn. “Við byrjuðum á að leggja tvær lagnir við Hvalbakinn. Þar fékkst góð blanda, um 60% aflans var þorskur og um 40% ýsa. Síðan var haldið norður á Tangaflak og þar voru lagðar rúmlega tvær lagnir en þá var komin bölvuð bræla. Síðan var bræla alla leiðina heim til Grindavíkur. Menn eru mjög sáttir við túrinn enda um fullfermi að ræða,” sagði Jónas Ingi.
Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson á Sighvati var einnig ánægður með aflabrögðin en sagði að veður hefði þó haft neikvæð áhrif á veiðiferðina. Hjá okkur var um að ræða fjórar lagnir, tvær við Héraðsflóann og tvær í Norðfjarðardýpinu. Aflinn var að mestu þorskur. Það má alveg segja að þetta hafi verið leiðinda brælutúr ef upphafið er undanskilið, en siglingin til Grindavíkur gekk ágætlega,” sagði Aðalsteinn Rúnar.
Bæði skipin héldu til veiða á ný fljótlega að löndun lokinni.