
Vestmannaeyjatogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir fullfermi í Þorlákshöfn á fimmtudaginn að aflokinni 30 tíma veiðiferð. Bæði skip lönduðu aftur fullfermi í Grindavík á laugardaginn og var veiðiferð þeirra ekki lengri en sú fyrri. Bæði skip byrjuðu túrinn í þorski á Selvogsbanka en síðan færðu þau sig utar í þeim tilgangi að blanda aflann. Heimasíðan ræddi stuttlega við skipstjórana, þá Ragnar Waage Pálmason á Bergey og Birgi Þór Sverrisson á Vestmannaey, og létu þeir vel af sér. Ragnar sagði að túr eins og þessi væri útilokaður ef ekki væri hörkumannskapur um borð. “Það gekk vel að veiða og í reyndinni væri ekki hægt að fylla skipið á svona skömmum tíma ef ekki væri úrvalsmannskapur til staðar. Það er ómetanlegt að hafa svona frábæran mannskap,” sagði Ragnar.
Birgir Þór á Vestmannaey tók undir með Ragnari og sagði að um hefði verið að ræða hörkutúr og fiskurinn sem fékkst hefði verið hinn fallegasti. ”Þetta var í reyndinni eins gott og það getur verið. Nú þegar hrygningarstoppið tekur gildi munum við halda austureftir og líklega veiða á Síðugrunni. Þar verður leitað að ýsu, en meirihluti aflans í tveimur síðustu túrum hefur verið þorskur,” sagði Birgir Þór.
Bæði skip héldu til veiða á ný fljótlega að löndun lokinni.