
Vestmannaeyjatogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE hafa fiskað ágætlega að undanförnu og veiði hefur einnig gengið vel hjá Birtingi NK. Bergey landaði fullfermi í Þorlákshöfn á sunnudag, Vestmannaey landaði einnig fullfermi í Grindavík í gær og Birtingur landaði um 70 tonnum í Hafnarfirði í gær. Heimasíðan heyrði hljóðið í skipstjórunum og voru þeir allir ágætlega sáttir við veiðina. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, sagði að túrinn hefði verið einfaldur og þægilegur. “Við byrjuðum á að taka eitt hol á Síðugrunni en síðan kom til hrygningarlokunar þar og þá færðum við okkur á Öræfagrunn. Á Öræfagrunni veiddist jafnt og þétt og við vorum einungis tvo sólarhringa að veiðum. Aflinn var langmest ýsa . Veðrið var hið fínasta á meðan veitt var en við fengum dálítinn kalda á landleiðinni,” sagði Jón.
Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að þeirra túr hefði verið mjög sambærilegur túrnum hjá Bergey. “Við byrjuðum á Síðugrunni og þegar lokun gekk í gildi þar færðum við okkur á Öræfagrunn. Það gekk vel að fiska og aflinn var nánast eingöngu ýsa. Þetta var fyrsti túrinn í býsna langan tíma án bullandi brælu. Við fengum bongóblíðu og allir voru kátir og hressir. Við munum halda til veiða á ný fljótlega eftir löndun og þá verður haldið á Selvogsbankann sem er að opnast á ný að loknu hrygnngarstoppi,” sagði Egill Guðni.
Hjálmar Ólafur Bjarnason, skipstjóri á Birtingi, sagði að túrinn hefði gengið vel. ”Túrinn hjá okkur var stuttur. Við fórum frá Hafnarfirði og byrjuðum úti á Eldeyjarbanka en færðum okkur síðan á Melsekk þar sem ætlunin var að ná í karfa. Karfaveiðin gekk vel og er karfi megnið af aflanum. Það voru áhafnaskipti á skipinu og það heldur til veiða á ný fljótlega eftir að löndun lýkur,” sagði Hjálmar Ólafur.