Frystitogarinn Blængur NK að sigla inn Norðfjörð. Ljósm. Guðlaugur Björn Birgisson

Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar að aflokinnni 24 daga veiðiferð í gærkvöldi. Afli skipsins var 461 tonn, þar af var ýsa 220 tonn og þorskur 100 tonn. Aflaverðmæti nam 350 milljónum króna. Skipstjóri fyrri hluta túrsins var Bjarni Ólafur Hjálmarsson en Sigurður Hörður Kristjánsson var skipstjóri síðari hlutann. Þeir félagar lýstu túrnum fyrir tíðindamanni heimasíðunnar.

Bjarni Ólafur sagði að túrinn hefði hafist á Vestfjarðamiðum. ”Við byrjuðum fyrir vestan en vorum þar einungis fyrstu dagana. Síðan færðum við okku0r austur fyrir land og vorum þar. Þetta var kropp allan tímann og lögð áhersla á ýsuveiði. Það þarf að hafa fyrir ýsunni um þessar mundir,” sagði Bjarni Ólafur.

Sigurður Hörður sagði að haldið hafi verið áfram á Austfjarðamiðum eftir að hann kom um borð. ”Við vorum fyrir austan allan tímann, frá Digranesflaki að Stokksnesgrunni. Áfram var haldið að reyna við ýsu og þetta var svona nudd. Það er staðreynd að ýsan er mun erfiðari en verið hefur. Mest af tímanum var einstök veðurblíða eins og Austfirðingar kannast við. Í sannleika sagt var veðrið hreint ótrúlegt,” sagði Sigurður Hörður.

Þeir skipstjórarnir sögðu að lokum að Blængsmenn væru virkilega spenntir fyrir árshátíðarferðinni til Póllands og þeir ætluðu að njóta hennar vel.