
Ísfisktogarinn Gullver NS landaði 92 tonnum í heimahöfn á Seyðisfirði í gær. Þórhallur Jónsson skipstjóri sagði að lögð hefði verið áhersla á ýsuveiði í túrnum sem stóð í fimm daga. “Við byrjuðum á að taka ýsu í Berufjarðarál en síðan var haldið á Breiðdalsgrunni þar sem fékkst þorskur. Keyrt var á Tangaflak þar sem var lítið að hafa og loks haldið á Glettinganesflak þar sem fékkst stór og falleg ýsa. Það var austanfýla nánast allan túrin en ekki er hægt að segja að veðrið hafi verið slæmt. Meirihluti aflans í túrnum var ýsa eða tæp 60 tonn. Það var loðna í fiskinum sem veiddist í túrnum og við urðum varir við loðnutorfur í Berufjarðarálnum. Veiðin fyrir austan land hefur verið að batna að undanförnu; þorskur fæst víðar en fyrst eftir áramótin og ýsuveiði hefur verið vaxandi. Þróunin hefur semsagt verið jákvæð,” sagði Þórhallur.