Gott hol hjá Jóhönnu Gísladóttur GK. Ljósm. Einar Ólafur Ágústsson

Ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK kom til löndunar í Grindavík sl. föstudagsmorgun. Heimasíðan sló á þráðinn til Einars Ólafs Ágústssonar skipstjóra og spurði frétta. Einar sagði að ýmislegt hefði gerst á skipinu síðustu dagana. „ Við hófum veiðar norðvstur af Látrabjargi og lentum þá í bölvuðu óhappi. Pokinn slitnaði frá og við fengum hann í skrúfuna. Það þurfti að draga skipið inn á Patreksfjörð og þar var skorið úr skrúfunni og landað þeim 15 tonnum sem við vorum komnir með. Það var mest karfi. Síðan var haldið til veiða á ný og kastað í grunnkantinum út af Patreksfirði. Þarna lentum við í fínni veiði og fylltum skipið á tveimur sólarhringum. Það var mest ýsa en einnig þorskur og steinbítur. Við héldum til Grundarfjarðar og lönduðum þar. Þá var haldið strax til veiða á ný og fyllt á þremur dögum. Við vorum í tvo sólarhringa á Látragrunni og fengum þar mest steinbít og þorsk og síðan í einn í Kolluálnum og þar fékkst þorskur. Fiskurinn sem þarna fékkst var virkilega fallegur. Það má því segja að þessi lota hjá okkur hafi byrjað heldur illa en endað vel og allt er gott sem endar vel,“ sagði Einar Ólafur.

Jóhanna Gísladóttir hélt til veiða á ný strax að löndun lokinni á föstudaginn.