Hrognavinnsla hafin af fullum krafti. Ljósm. Geir Sigurpáll Hlöðversson

Börkur NK kom til heimahafnar í Neskaupstað á mánudagsmorgun með 2.000 tonn af loðnu. Um var að ræða hrognaloðnu og hófst svonefnd kúttun á loðnunni strax. Það er kallað að kútta loðnuna þegar hún er skorin og hrognunum náð úr henni. Kúttunin er framkvæmd með vélbúnaði og fara hrognin í hreinsun og pökkun í fiskiðjuverinu en hratið fer til mjöl- og lýsisvinnslu. Lokið var við að landa úr Berki í gær en enn er verið að kútta loðnu úr farmi hans.

Hreinsun, pökkun og frysting loðnuhrognanna hófst í fiskiðjuverinu í gærkvöldi og hefur það gengið vel að sögn Geirs Sigurpáls Hlöðverssonar rekstararstjóra versins. Það eru um 30 manns sem starfa á vakt við hrognaframleiðsluna og það er alltaf mikil og góð stemmning í starfsmannahópnum á meðan á henni stendur. Japanskir fulltrúar kaupenda hrognanna fylgjast náið með framleiðsluferlinum.

Beitir NK kemur til Neskaupstaðar með 2.300 tonn af hrognaloðnu í hádeginu í dag og mun farmurinn úr honum tekinn til kúttunar strax og kúttun á afla Barkar lýkur. Barði NK er nýkominn á loðnumiðin á Breiðafirði og mun hann koma með næsta hrognuloðnufarm að landi. Nauðsynlegt er að stýra veiðum skipanna og hafa gott heildarskipulag á veiðum og vinnslu því um er að ræða viðkvæmt og verðmætt hráefni.

Beitir NK með gott loðnukast á síðunni í Breiðafirðinum. Ljósm. Ingvar Ísfeld Kristinsson

Heimasíðan sló á þráðinn til Tómasar Kárasonar skipstjóra á Beiti og spurði hann hvernig veiðarnar hefðu gengið. ”Þær gengu vel. Við fengum aflann í fimm köstum og um er að ræða fallega og góða hrognaloðnu. Hrognafyllingin er 26 – 28% og hlutfall hrygnu í aflanum er yfir 60%. Síðustu fréttir herma að nú sé loðna sem kemur að vestan að blandast þessari hrognaloðnu í Breiðafirðinum. Hrognin í þeirri loðnu eru komin skemur á þroskabrautinni þannig að þetta er áhyggjuefni, en staðreyndin er sú að það er loðna víða,” sagði Tómas.