
Skömmu fyrir hádegi í gær kom Beitir NK til Neskaupstaðar með 600 tonn af síld. Heimasíðan ræddi stuttlega við Ólaf Gunnar Guðnason skipstjóra og spurði hvernig veiðin hefði gengið. “Veður truflaði veiðarnar töluvert í þessari veiðiferð. Þegar við komum á miðin var bölvuð bræla og þegar henni lauk þurfti að leita. Leitin tók nokkurn tíma en undir lok túrsins var síldin fundin og hörkuveiði. Þá var veitt í kantinum út af Héraðsflóanum og það er síld að finna víðar, til dæmis í Norðfjarðardýpinu. Við fengum 370 tonn af fallegri síld í síðasta holinu. Um 70% af síldinni sem fékkst er norsk – íslensk vorgotssíld og 30% er íslensk sumargotssíld. Með okkur í þessum túr var góður gestur en Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri í Fjarðabyggð kom með. Hún stóð sig vel í brælunni og það vottaði ekki fyrir sjóveiki hjá henni,” sagði Ólafur Gunnar.

Heimasíðan ræddi við Jónu Árnýju og spurði hana hvernig það hefði komið til að hún færi í síldartúr. ”Í sumar hitti ég skipstjóra á einu Síldarvinnsluskipanna á flugvelli og við fórum að spjalla um veiðarnar. Ég sagði honum að ég hefði aldrei farið í veiðiferð en dauðlangaði að gera það. Hann sagði að ég væri alltaf velkomin og mér yrði örugglega vel tekið um borð í einhverju skipanna. Síðan sá ég að síldveiðar voru hafnar og þá ákvað ég að slá til. Ég hafði samband og spurði hvort mögulegt væri að fá að fara í túr á síldarskipi og mér var tjáð að það væri sjálfsagt mál. Mér finnst einfaldlega viðeigandi að bæjarstjóri í stóru sjávarútvegssveitarfélagi viti hvernig veiðar eins og þessar fara fram. Mér gafst kostur á að fara með Beiti en þeir Beitismenn vöruðu mig við í upphafi og sögðu að verið væri að fara út í brælu. Það var vissulega bræla þegar út var komið en ég fann ekki fyrir sjóveiki og reyndar ekki heldur fyrir sjóriðu þegar í land var komið. Það var stórkostlegt að fá að fylgjast með veiðunum. Ég var meðal annars uppi í brú og sá hvernig öll tæki þar eru notuð. Það var líka gaman að sjá hvernig áhöfnin sinnti sínum störfum. Allt var vel skipulagt og menn gengu til verka af ákveðni. Það var líka upplifun að sjá allt lífið þegar híft var. Fuglamergðin var mikil og háhyrningar í tugatali voru til staðar í von um að nálgast eitthvað æti. Svo var líka boðið upp á frábæran mat um borð, meðal annars gæddu menn sér á gæðakjöti frá Skorrastað en þar er ég alin upp og þar á ég heima. Í sannleika sagt var þessi veiðiferð ævintýri fyrir mig og Beitismenn buðu mér strax að koma með aftur. Að lokum skal þess getið að ég tók bæjarráðsfund á mánudagsmorguninn á teams í borðsalnum á Beiti og það gekk eins og í sögu,” sagði Jóna Árný.
Löndun úr Beiti lauk í morgun og hélt hann þegar til veiða á ný. Skömmu eftir að Beitir lét úr höfn kom Börkur NK með 1.100 tonn af síld og hófst þegar vinnsla úr honum. Herbert Jónsson skipstjóri sagði að aflinn hefði fengist í fjórum holum á Héraðsflóanum. Þá sagði hann að mikil ferð væri á síldinni og það hefði ekki mikið verið að sjá en það gæti breyst fljótt.