
Eins og kunnugt er varð mikil sprenging og eldsvoði í vélarrúmi Barða NK þann 12. júní sl. þegar skipið var leiðinni frá Færeyjum til Íslands að lokinni vélarupptekt. Þegar sprengingin varð var skipið statt skammt frá Færeyjum og kom færeyskt varðskip á vettvang og dró Barða til hafnar í Þórshöfn. Síðan hefur Barði legið við bryggju í Þórshöfn þar sem unnið er að viðgerð á skipinu eftir sprenginguna og eldsvoðann. Grétar Örn Sigfinnsson, rekstrarstjóri útgerðar Síldarvinnslunnar, hefur að undanförnu dvalið í Færeyjum og hafði heimasíðan samband við hann og spurði hvernig viðgerðarvinnan gengi. “Ég held að megi segja að hún hafi gengið vel. Skemmdirnar í vélarrúminu voru mjög miklar og má nefna að öll klæðning var ónýt og sömuleiðis allir kaplar auk þess sem ýmiss búnaður varð fyrir tjóni. Í reyndinni eru ekki allar skemmdir komnar í ljós ennþá. Um þessar mundir er vinna við kapla og klæðningu í fullum gangi og eins hefur verið unnið að viðgerð á aðalvél skipsins og er hún langt komin. Þegar allri þessari viðgerðavinnu lýkur þarf að þrífa vélarrúmið endanlega og mála. Gert er ráð fyrir að kapla- og klæðningarvinnu verði lokið síðari hluta októbermánaðar og unnt verði að fara í prufusiglingu í fyrri hluta nóvember. Allar svona áætlanir eru þó háðar óvissu því alltaf getur eitthvað óvænt komið upp á. Þá ber að geta þess að tíminn er nýttur til að sinna ýmsum öðrum viðhaldsverkefnum í skipinu. Eins og mál standa nú má gera ráð fyrir að Barði verði kominn heim fyrir jól og hann ætti að geta hafið veiðar í lok ársins en geta má þess að áhöfnin á Barða hefur veitt töluvert af kolmunna á Bjarna Ólafssyni AK á meðan unnið er að viðgerðinni í Færeyjum,” sagði Grétar Örn.
Vísisskipið Jóhanna Gísladóttir GK er einnig í Þórshöfn í Færeyjum þar sem unnið er að viðhaldsverkefnum í skipinu. Meðal annars þurfti að sinna viðgerðum á skrokki. Jóhanna Gísladóttir er á söluskrá.