Það breytist margt með skjótum hætti hvað veiðar varðar. Í gær var greint frá því hér á heimasíðunni að þegar lokið væri löndun á kolmunna úr Beiti NK myndi skipið halda til síldveiða austur af landinu og væntanlega koma inn með síld til vinnslu á mánudagsmorgun. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að Beitir haldi til makrílveiða í Smugunni en frést hefur af mjög góðri veiði þar síðustu daga. Grétar Örn Sigfinnsson , rekstrarstjóri útgerðar Síldarvinnslunnar, sagði að um þessar mundir legðu uppsjávarveiðiskip stund á síldveiðar, kolmunnaveiðar og makrílveiðar og því þyrfti ýmislegt að skoða þegar ákveðið væri hvernig veiðarnar skyldu skipulagðar hverju sinni.
Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti, sagði að það væri spennandi að kanna stöðuna á makrílnum. “Við töldum að makrílveiðum væri lokið hjá okkur en við svona aðstæður breytast hlutir með litlum fyrirvara. Það hafa borist fréttir af hörkumakrílveiði í Smugunni og hafa skip þar verið að fá afar góð hol, jafnvel yfir 700 tonn. Það verður lokið við að landa kolmunnanum úr Beiti um eða upp úr hádegi og við gerum ráð fyrir að halda í Smuguna klukkan tvö. Við komum til með að láta úr höfn fullir bjartsýni,” sagði Tómas.