Beitir NK við bryggju Hampiðjunnar í Neskaupstað. Ljósm. Guðlaugur B. Birgisson

Beitir NK kom til löndunar í Neskaupstað í gær með 3.000 tonn af kolmunna sem fengust í færeyskri lögsögu. Heimasíðan ræddi stuttlega við Ólaf Gunnar Guðnason skipstjóra og spurði fyrst hvort mikið væri að sjá af kolmunna á miðunum. “Það var ekki sérstaklega mikið að sjá á meðan við vorum á miðunum en það virtist vera að lagast um það leyti sem við lögðum af stað í land. Við vorum að veiðum austur af Færeyjum og þetta var okkar fyrsti túr því skipið var í slipp á Akureyri. Í túrnum var veitt í nýtt troll og það tekur alltaf svolítinn tíma að venjast nýju veiðarfæri. Aflinn fékkst í tíu holum og dregið var frá 12 og upp í 18 tíma. Það verður væntanlega haldið á ný til veiða í kvöld,” sagði Ólafur Gunnar.