
Beitir NK kom til Neskaupstaðar í morgun með 1.260 tonn af síld. Vinnsla hófst strax í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar að afloknu vel þegnu helgarfríi. Heimasíðan ræddi við Tómas Kárason skipstjóra og spurði frétta af veiðunum. “Veiðar gengu ágætlega í þessum túr en engu að síður þurfti töluvert að leita. Við hófum veiðarnar norður í Héraðsflóa en enduðum suður í Litladýpi. Síldin var elt út fyrir kantinn en hún er líklega á leið frá landinu í töluverðum mæli. Það voru alls tekin sex hol í veiðiferðinni og var aflinn býsna misjafn. Mest fengum við um 500 tonn í holi út af Reyðarfjarðardýpinu. Veðrið var bara gott í túrnum, en við fengum smábrælu eina nóttina. Skiptingin á aflanum er 60% norsk – íslensk síld og 40% íslensk sumargotssíld. Í morgun, þegar við vorum að koma í land, fréttum við af góðri veiði hjá skipunum á miðunum þannig að menn geta bara brosað,” sagði Tómas.