
Ísfisktogarinn Birtingur NK kom til löndunar í Grindavík aðfaranótt föstudags og landað var úr skipinu á föstudaginn. Aflinn var rúmlega 100 tonn, langmest ýsa. Heimasíðan hafði samband við Einar Ólaf Ágústsson skipstjóra en hann var að fara sinn fyrsta túr í skipstjórastóli á Birtingi. Einar lét vel bæði af skipinu og veiðinni. ”Birtingur er hörkuskip. Þetta er gott sjóskip og síðan er þægilegt að vinna á því. Það er mikið og gott fiskirí um þessar mundir og við fengum aflann á stuttum tíma við Tána suður af Selvogsbankanum. Þetta hefði ekki getað gengið mikið betur,” sagði Einar Ólafur.
Birtingur var smíðaður í Taiwan árið 2009 og hét upphaflega Þórir SF. Árið 2019 var skipið lengt um 10 metra og gerðar á því viðamiklar breytingar. Í Birtingi er búnaður sem tegundagreinir og stærðarmetur fisk. Skipið er 637 brúttótonn að stærð. Síldarvinnslan festi kaup á skipinu haustið 2024.