
Ísfisktogarinn Birtingur NK landaði um 35 tonnum af karfa í Hafnarfirði sl. föstudag að lokinni stuttri veiðiferð. Er þetta fyrsta veiðiferð togarans að lokinni lagfæringum á spili. Að sögn Hjálmars Ólafs Bjarnasonar skipstjóra fékkst aflinn á Wilson’s Corner og á 55 mílunum. “Hér um borð eru allir brattir og ánægðir með að hefja veiðar að loknu dálitlu hléi. Ég reikna með að við forum að fikra okkur austur eftir fljótlega,” sagði Hjálmar.