
Ísfisktogarinn Birtingur NK kom til löndunar í Grindavík í gærkvöldi og landað var úr skipinu í morgun. Heimasíðan ræddi við Einar Ólaf Ágústsson skipstjóra og spurði um veiðiferðina. “Við byrjuðum túrinn á Látragrunni og drógum norður á Deildargrunn en síðan var farið út á Hala. Aflabrögðin voru ekkert sérstök en þetta voru 50 tonn þegar upp var staðið. Mest af aflanum var karfi en síðan voru þetta ýsa, þorskur og fleiri tegundir. Veðrið var ágætt þar til undir lokin en þá brast á sunnan fræsingur,” sagði Einar Ólafur.
Birtingur er nú kominn í sumarstopp og mun ekki halda til veiða á ný fyrr en eftir verslunarmannahelgi.