Birtingur NK landaði í Neskaupstað í gær. Ljósm. Andri Gunnar Axelsson

Ísfisktogarinn Birtingur NK landaði í heimahöfn í Neskaupstað í gær. Aflinn var liðlega 50 tonn, mest ýsa og þorskur. Heimasíðan ræddi við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra og spurði hvernig veiðiferðin hefði gengið. ” Við fórum frá Hafnarfirði og héldum austur með suðurlandinu. Við reyndum fyrir okkur á nokkrum stöðum á leiðinni en veiddum mest á Skrúðsgrunni og í Litladýpi. Það hefði mátt ganga heldur betur að veiða framan af en það kroppaðist þokkalega í restina á túrnum. Það var ágætt veður allan túrinn nema rétt í restina en Birtingur er fantasjóskip og fer vel með mannskapinn þó blási dálítið. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi áhöfn skipsins landar í heimahöfn í Neskaupstað en óvíst er hvert haldið verður til veiða að lokinni löndun. Á þessum árstíma hefur oft fiskast vel hérna fyrir austan og við sjáum til hvernig þetta verður nú,” sagði Hjálmar Ólafur.