Birtingur NK að landa í Neskaupstað. Ljósm. Hrafn Bjarnason

Ísfisktogarinn Birtingur NK kom til Neskaupstaðar í dag og er að landa. Heimasíðan ræddi stuttlega við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra og fékk fréttir af aflabrögðum. ”Við erum með 90 tonn og það verður að segjast að það var fínasta kropp í þorski í túrnum. Við hófum veiðar á Þórsbanka en færðum okkur síðan yfir á Verkamannabankann þar sem mest af þorskinum fékkst. Við reyndum einnig við ýsu en það gekk heldur erfiðlega. Það var leitað að ýsunni alveg frá Breiðdalsgrunni og norður á Gletting með heldur litlum árangri. Það var fínasta veður í öllum túrnum og ekki yfir neinu að kvarta í þeim efnum. Gert er ráð fyrir að skipið haldi á ný til veiða í kvöld,” sagði Hjálmar Ólafur.