Birtingur NK landaði í Hafnarfirði í gær. Ljósm. Grétar Örn Sigfinnsson

Ísfisktogarinn Birtingur NK landaði í gær 100 tonnum af gullkarfa í Hafnarfirði. Karfinn fékkst á Melsekk. Heimasíðan ræddi við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra og spurði hvernig veiðiferðin hefði gengið. “Hún gekk ágætlega. Þetta er önnur veiðiferð okkar á skipinu og það tekur alltaf dálítinn tíma að finna taktinn og læra á skip. Það hjálpaði til í þessari veiðiferð að veðrið var gott þar til í blálokin. Við fengum þennan karfa á rúmlega tveimur sólarhringum og um er að ræða fínasta fisk. Veiðin var lengst af jöfn og góð en í endann brast á sprengjuveiði og menn þurftu að gæta sín á að fá ekki alltof mikið. Hér um borð eru menn bara hressir og bjartsýnir en það þarf að sinna örlitlum lagfæringum áður en haldið verður út á ný,” sagði Hjálmar Ólafur.