
Ísfisktogarinn Birtingur NK kom til Grindavíkur með fullfermi til löndunar á mánudaginn. Heimasíðan ræddi við Einar Ólaf Ágústsson skipstjóra og spurði um veiðiferðina. ”Þessi veiðiferð gekk vel. Hún tók að vísu eina sex daga en við vorum einungis þrjá daga að veiðum því stímin tóku mikinn tíma. Við fylltum skipið og komum með 110 tonn að landi. Aflinn var ýsa, þorskur og karfi og skiptingin á milli tegundanna var tiltölulega jöfn. Þetta var virkilega fínn fiskur. Veiðin fór að mestu fram á tveimur stöðum, annars vegar á Ingólfshöfðanum þar sem mest fékkst þorskur og ýsa og síðan á Melsekk þar sem karfinn veiddist. Veður í túrnum var hið þokkalegasta. Það var golukaldi nánast allan tímann og ekki yfir neinu að kvarta,” sagði Einar Ólafur.
Birtingur hélt á ný til veiða á mánudagskvöld.