
Ísfisktogarinn Birtingur NK kom til löndunar í Neskaupstað í gær að aflokinni fyrstu veiðiferð eftir sumarstopp. Afli skipsins var 64 tonn. Heimasíðan ræddi stuttlega um túrinn við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra og spurði fyrst hvar hefði verið veitt. ”Við létum úr höfn í Grindavík og hófum veiðar á Öræfagrunni en síðan var haldið austur eftir og endað við Fótinn. Veður var að mestu gott en þó þurftum við einu sinni að færa okkur þegar blés hressilega. Segja má að við séum ekkert alltof ánægðir með aflabrögðin en fiskurinn sem fékkst er hins vegar virkilega fínn. Aflinn var langmest ýsa en svo var svolítill þorskur með. Við reiknum með að stoppa í landi í sólarhring eða svo og ekki hefur verið tekin nein ákvörðun um hvert næst verður haldið til veiða. Við sjáum bara til hvert stefnan verður tekin,” sagði Hjálmar.