Bjarni Ólafsson AK. Ljósm. Sigurjón Mikael Jónuson

Uppsjávarskipið Bjarni Ólafsson AK 70 er nú að landa í Neskaupstað eftir sína síðustu veiðiferð fyrir Síldarvinnsluna. Aflinn, um 700 tonn af síld, verður unninn í fiskiðjuveri félagsins. Skipið hefur verið selt og verður afhent nýjum eigendum í dag. Með lönduninni í Neskaupstað lýkur útgerð Bjarna Ólafssonar fyrir Síldarvinnsluna og heldur skipið til nýs eiganda og nýrra verkefna í Eyjafirði hjá Samherja Íslandi ehf.

Bjarni Ólafsson AK var smíðaður árið 1999 í Noregi. Hann er 1.969 brúttótonn að stærð, með 7.505 hestafla aðalvél og getur borið um 1900 tonn af afla. Skipið er búið til uppsjávarveiða með nót og flottroll.

Saga skipsins hjá Síldarvinnslunni hófst árið 2015 þegar útgerðarfélagið Runólfur Hallfreðsson ehf. á Akranesi keypti skipið. Við sameiningu félaganna árið 2021 varð það síðan að fullu hluti af flota Síldarvinnslunnar.

Verkefni skipsins hafa verið af skornum skammti undanfarin ár en í júlí síðastliðnum var Bjarni Ólafsson AK aftur kallaður til veiða vegna tjóns sem varð á Barða NK við Færeyjar. Síðan hefur skipið verið gert út á kolmunna- og síldveiðar og þannig gegnt mikilvægu hlutverki á meðan Barði NK hefur verið frá veiðum en gert er ráð fyrir að Barði verði tilbúinn til veiða að nýju í desember.