
Bjarni Ólafsson AK kom til Neskaupstaðar um miðnætti með 770 tonn af kolmunna. Löndun hófst strax úr skipinu en kolmunninn er frystur í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Heimasíðan innti Þorkel Pétursson skipstjóra eftir fréttum af túrnum. ”Þetta gekk virkilega vel og það var í reynd um hörkuveiði að ræða. Við vorum að veiðum á Þórsbanka í Rósagarðinum. Aflinn fékkst á einungis 36 tímum í fjórum stuttum holum. Það var dregið í fimm til sex tíma. Þarna var talsvert að sjá. Það voru góðir blettir allvíða. Fiskurinn er heldur smærri en áður en engu að síður virkilega gott hráefni. Ég geri ráð fyrir að það taki um sólarhring að vinna aflann. Þarna voru einungis tvö skip að veiðum, við og Hoffell SU. Veður var gott megnið af túrnum en það brældi í síðasta holinu. Við erum mjög ánægðir með að sinna þessum veiðum enda ganga þær vel,” sagði Þorkell.