Bjarni Ólafsson AK kemur til hafnar með kolmunna.
Ljósm. Sigurjón Mikael Jónuson

Bjarni Ólafsson AK kom í gærmorgun til Neskaupstaðar með fullfermi af kolmunna sem fékkst suðaustur af landinu. Heimasíðan hafði samband við Theodór Haraldsson skipstjóra og spurði um veiðiferðina. ”Þetta var algjör draumatúr sem gekk vel í alla staði. Við héldum til veiða á fimmtudag og hófum veiðar aðfaranótt föstudags norðarlega í Rósagarðinum. Túrinn var semsagt þrír og hálfur sólarhringur höfn í höfn. Veðrið var gott að undanskilinni 12 tíma brælu sem truflaði okkur ekki verulega. Veiðin var góð og jöfn og fiskurinn virkilega fínn. Aflinn fékkst í fimm holum. Við fengum 400 tonn í öllum fjórum fyrstu holunum og þá var dregið í sjö til fjórtán tíma. Síðasta holið var stubbur eða örstutt og tekið til að fylla skipið. Síðan var haldið til löndunar með 1.800 tonn eða fullfermi af kældum kolmunna sem er örugglega úrvalshráefni til mjöl- og lýsisframleiðslu,” sagði Theodór.