Bjarni Ólafsson AK kemur með kolmunnafarm til Neskaupstaðar.
Ljósm. Sigurjón Mikael Jónuson

Bjarni Ólafsson AK kom með fullfermi eða 1.700 tonn af kolmunna til Neskaupstaðar í morgun. Að þessu sinni fer farmurinn til framleiðslu á mjöli og lýsi en að undanförnu hefur afli skipsins að mestu verið frystur. Heimasíðan sló á þráðinn til Þorkels Péturssonar og spurði um gang veiðanna. ”Þetta gekk alveg þokkalega en við fengum brælu í rúman sólarhring og vorum stopp á meðan hún gekk yfir. Aflinn fékkst í átta holum en fyrstu tvö holin voru mjög stutt. Við tókum að jafnaði tvö hol á dag. Við hófum veiðar norðarlega í Rósagarðinum en eltum fiskinn suðureftir og enduðum við Hesthúsið og Kamarinn sunnarlega í Rósagarðinum. Fiskurinn sem þarna fékkst er stór og fallegur og það virðist vera töluverð fita í honum. Nú er kolmunnaveiðinni líklega lokið í bili hjá okkur enda kvótinn búinn. Menn hér um borð eru sallaánægðir með kolmunnaveiðina að undanförnu. Við erum líklega búnir að slíta upp ein 7.000 tonn af kolmunna núna seinni hluta sumars og í haust. Það er ekki slæmur árangur og óneitanlega er afar þægilegt að stunda veiðarnar í Rósagarðinum sem er hér við bæjardyrnar,” sagði Þorkell.