Kolmunninn er stór og fallegur og hentar vel til frystingar. Ljósm. Geir Sigurpáll Hlöðversson

Bjarni Ólafsson AK kom til hafnar í Neskaupstað í morgun með tæp 400 tonn af kolmunna sem verður frystur í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Heimasíðan ræddi við Theodór Haraldsson skipstjóra og spurði um gang veiðanna. “Eftir að hafa landað fullfermi af kolmunna var haldið beint út í Rósagarðinn. Þar stoppuðum við í tæpan sólarhring og tókum tvö hol í rjómablíðu. Um 200 tonn fengust í hvoru holi en dregið var í sjö tíma í fyrra holinu og fimm í því síðara. Hlé var á makrílvinnslu í fiskiðjuverinu og því vorum við kallaðir inn með aflann og verður hann frystur. Hér er um að ræða stóran og fallegan kolmunna sem hentar örugglega mjög vel til frystingar,” sagði Theodór.

Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuversins, sagði að sér litist vel á kolmunnavinnsluna og hér væri um gott hráefni að ræða. ”Síðan er hafin hörku makrílveiði í Smugunni þannig að verkefnin hér í fiskiðjuverinu verða næg á næstunni,” sagði Geir Sigurpáll.