Blængur NK. Ljósm. Hafþór Hreiðarsson

Landað er úr frystitogaranum Blængi NK í Hafnarfirði í dag að lokinni síðustu veiðiferð skipsins á kvótaárinu. Veiðiferðin var stutt og var einungis verið 19 daga að veiðum. Aflinn er um 650 tonn upp úr sjó og verðmæti hans er 328 milljónir króna. Heimasíðan ræddi stuttlega við Sigurð Hörð Kristjánsson skipstjóra og spurði fyrst hvar hefði verið veitt. ”Við vorum mest á Halanum í túrnum og veðrið var frábært nánast allan túrinn. Það var blíða og fullkomlega sléttur sjór lengst af. Í þessum túr var góð ufsaveiði og það er mest af ufsa í aflanum, síðan er karfi og þorskur með. Vinnslan um borð var samfelld allan túrinn og var mjög góður gangur í henni. Við vorum með rúmlega 20 tonn af frosnum afurðum á dag. Það var eiginlega synd að fara úr svona góðri ufsaveiði en nú er slippur næst á dagskrá hjá okkur. Að lokinni löndun verða veiðarfæri tekin í land og slippurinn undirbúinn. Skipið fer í slipp í Reykjavík og þar verður sinnt hefðbundnu viðhaldi. Það verður málað, vélin tekin upp og svo framvegis. Gert er ráð fyrir að slippurinn taki um mánaðartíma,” sagði Sigurður Hörður.