
Frystitogarinn Blængur NK hefur verið í slipp í Reykjavík í á sjöttu viku. Hann var sjósettur í gær og heldur væntanlega til veiða í kvöld. Heimasíðan hafði samband við Grétar Örn Sigfinnsson rekstrarstjóra útgerðar Síldarvinnslunnar og spurði hann hvað hefði verið gert í skipinu. “Það hefur heilmikið verið gert og skipið er virkilega flott. Blængur er í sparifötunum núna. Skipið var málað hátt og lágt, aðalvélin var tekin upp og framkvæmdur öxuldráttur ásamt því að fleiri viðhaldsverkefnum var sinnt. Upphaflega var gert ráð fyrir að skipið yrði í slipp í fjórar vikur en reyndin var sú að það var í slippnum í á sjöttu viku. Þannig að tímalega séð fór verkið töluvert fram úr áætlun. Í dag hefur skipið verið gert klárt á veiðar og áætlað er að það láti úr höfn í kvöld. Líklegt er talið að veitt verði fyrir vestan land og á Vestfjarðamiðum, allavega til að byrja með,” sagði Grétar.

Blængur var smíðaður árið 1973 á Spáni en hefur verið í eigu Síldarvinnslunnar frá árinu 2015. Skipið hét upphaflega Ingólfur Arnarson og síðar Freri. Því var breytt í frystitogara árið 1985 og lengt og hækkað árið 2000.