Frystitogarinn Blængur NK er að landa í Hafnarfirði í dag. Aflinn er 730 tonn upp úr sjó eða rúmlega tuttugu þúsund kassar af frystum fiski. Verðmæti aflans er 465 milljónir króna. Veiðiferðin tók 25 daga. Heimasíðan sló á þráðinn til Sigurðar Harðar Kristjánssonar skipstjóra og innti hann frétta af veiðiferðinni. ”Þetta var í reyndinni fínasti túr og það var þokkalegt nudd megnið af honum. Veiðar hófust á Breiðdalsgrunni fyrir austan, síðan var haldið suður fyrir land í leit að ufsa og loks endað á Halasvæðinu út af Vestfjörðum. Það verður að segjast að miðað við árstíma var veðrið tiltölulega gott. Aflinn í túrnum var blandaður; mest af ufsa og síðan þorskur, ýsa, karfi og gulllax. Loðna sást mjög víða í veiðiferðinni og það er mun meira af henni en við höfum lengi séð. Það voru góðar loðnutorfur bæði fyrir austan og vestan. Fiskurinn þéttir sig á eftir loðnunni og þá verða skilyrði hagstæð til veiða. Þessi loðnugegnd gefur góð fyrirheit um komandi vertíð,” sagði Sigurður Hörður.
Blængur mun halda til veiða á ný á morgun.

Ljósm. Guðlaugur Björn Birgisson.