Löndun úr Blængi NK í morgun. Ljósm. Hákon Ernuson

Frystitogarinn Blængur NK er að landa í Neskaupstað í dag að loknum 26 daga túr. Afli skipsins var 600 tonn upp úr sjó og verðmæti hans eru 461 milljónir króna. Heimasíðan ræddi við Sigurð Hörð Kristjánsson skipstjóra og spurði hvernig túrinn hefði verið. ”Veiðin var heldur róleg og það var víða farið. Við veiddum fyrir vestan, úti fyrir Norðurlandinu og fyrir austan. Aflinn var blandaður, mest þorskur og síðan gullkarfi, ýsa og ufsi. Nú eru haustlægðirnar byrjaðar að koma og þær hafa auðvitað sín áhrif. Undir lok túrsins leituðum við skjóls út af Langanesi og héldum okkur þar síðustu þrjá sólarhringana. Annars er um að ræða dæmigert haustástand á miðunum. Um borð eru menn þokkalega brattir og láta haustbrælurnar hafa lítil áhrif á sig,” sagði Sigurður Hörður.

Gert er ráð fyrir að Blængur haldi til veiða á ný annað kvöld.