Blængur NK ljós. Smári Geirsson

Landað var úr frystitogaranum Blængi NK í Neskaupstað síðastliðinn föstudag að aflokinni vel heppnaðri veiðiferð. Afli skipsins var 722 tonn upp úr sjó að verðmætum 310 milljónir króna. Aflasamsetningin var nokkuð fjölbreytt mest var veitt af gullkarfa og ýsu en þó töluvert af þorsk og ufsa. Tíðindamaður heimasíðunnar gaf sig á tal við Sigurð Hörð skipstjóra á Blængi og fékk að heyra af túrnum „Þetta var hefðbundinn uppskrift hjá okkur við byrjuðum að reyna við grálúðu hér fyrir austan og það var aðeins reitingur í henni. Eftir það lá leiðin vestur og vorum við fyrir vestan restina af túrnum með áherslu á ufsann. Ufsinn er oft brellinn og var lítið af honum framan af en komu þó tvö þokkaleg skot. Oftar en ekki var talsvert af þorsk að koma með. Það var gott að geta gripið í karfann og ýsuna. Heilt yfir er mannskapurinn ánægður með túrinn og haustið leggst vel í okkur enda ekki annað hægt þegar vel gengur.“ Segir Sigurður Hörður.

Blængur er kominn til veiða á ný og landar hann aftur í lok mánaðar.