Landað úr Blængi NK í morgun. Ljósm. Smári Geirsson

Frystitogarinn Blængur NK kom til löndunar í Neskaupstað í gær. Aflinn var 420 tonn eða 14 þúsund kassar. Aflaverðmæti var um 417 milljónir króna. Þetta er enn einn góði túrinn hjá Blængi á árinu en skipið hefur fiskað fyrir rúmlega þrjá milljarða króna það sem af er ári. Heimasíðan ræddi um veiðiferðina við Bjarna Ólaf Hjálmarsson skipstjóra.”Þetta var þriggja vikna túr hjá okkur eða 21 dagur. Við vorum mest að veiðum á suðausturmiðum en veiddum þó í eina þrjá daga úti fyrir Vestfjörðum. Það var í reynd gott veður allan tímann. Aflinn var mjög blandaður í túrnum. Þó ekki sé ástæða til að kvarta þá mætti alveg vera meiri kraftur í veiðinni um þessar mundir en við getum þó ekki verið annað en ánægðir með útkomuna í veiðiferðinni. Hér um borð eru menn bara hressir og kátir,” sagði Bjarni Ólafur.

Blængur mun halda á ný til veiða í kvöld.