
Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í gær að afloknum tuttugu og tveggja daga túr. Löndun fer fram í dag. Afli skipsins var 470 tonn upp úr sjó og eru verðmæti aflans 364 milljónir króna. Heimasíðan ræddi við Bjarna Ólaf Hjálmarsson skipstjóra sem lét vel af sér. ”Þetta var stuttur túr og hann gekk í reyndinni vel. Veður var almennt gott, engar stórar brælur. Við héldum okkur á Austfjarðamiðum og á miðunum út af suðausturlandinu allan túrinn. Mest fékkst af ýsu, en svo var þorskur, ufsi og grálúða einnig í aflanum. Það var alls engin mokveiði en ágætis nudd allan túrinn. Það sem skiptir máli er fiskverðið. Verðið hefur hækkað mikið að undanförnu og segja má að við finnum fyrir verðhækkunum í hverjum túr. Það er semsagt ágætt hljóðið í okkur Blængsmönnum,” sagði Bjarni Ólafur.
Blængur mun halda til veiða á ný annað kvöld.