
Ljósm. Guðlaugur Björn Birgisson
Frystitogarinn Blængur NK kom til hafnar í Neskaupstað í gær að aflokinni 25 daga veiðiferð. Aflinn var um 600 tonn upp úr sjó og mun verðmæti hans vera um 460 milljónir króna. Mest var af ýsu í aflanum eða 205 tonn, 180 tonn voru þorskur og 160 tonn ufsi auk þess sem nokkuð var af grálúðu. Bjarni Ólafur Hjálmarsson var ánægður með veiðiferðina. „Þetta var flottur túr. Það var veitt á Austfjarðamiðum og einnig á miðum suðaustur af landinu. Í reyndinni var í túrnum veitt frá Mýragrunni og norður á Digranesflak. Veður var að mestu gott og veiðin var jöfn. Vel gekk að vinna aflann enda áhöfnin góð og samhent. Við vorum mjög ánægðir með að fá ufsann en hann hefur verið heldur erfiður viðureignar. Ufsinn fékkst frá Berufjarðarál og vestur á Stokksnesgrunn. Miðað við árstíma og lengd veiðiferðar var þetta bara hörkutúr sem menn geta ekki annað en verið ánægðir með,“ sagði Bjarni Ólafur.
Blængur mun halda til veiða á ný á föstudagskvöld.